Golfmót Rótarý á Íslandi

miðvikudagur, 25. júní 2025 12:00-21:00, Golfklúbbur Öndverðarness
Vefsíða: https://tourentry.golfbox.dk/?cid=5089519
Fyrirlesari(ar):

Skráning fer fram á hlekk hér að ofan - hver einstaklingur verður að skrá sig sérstaklega.  Vinsamlega hafið samband við Golfklúbb Öndverðarness ef að þið viljið bóka hóp með ykkur - eða aðila, sem ekki eru skráðir í golfklúbb og geta því ekki skráð sig á Golfboxi.


Skipuleggjendur:
  • Jón Karl Ólafsson

Golfmót Rótarý 2025

 

Golfmót Rótarý á Íslandi verður haldið þann 25. júní hjá Golfklúbbi Öndverðarness og hefst klukkan 12:00.  Öllum Rótarýfélögum á Íslandi er boðið til leiks og einnig er gert ráð fyrir gestum.  Í lok móts verða viðurkenningar afhentar og við snæðum saman og eigum skemmtilega stund.

Mótið er í þrennu lagi:

1.      Klúbbakeppni Rótarý, þar sem krýndir verða meistarar þessa árs.  Um er að ræða punktakeppni á milli liða.  Félagar úr hverjum klúbbi telja saman til liðs og síðan eru tvö bestu skor liðsmanna tekin saman.  Hæstu samanlagðir punktar liðs krýna sigurvegara liðakeppninnar. 

2.      Punktakeppni einstaklinga.  Allir þátttakendur telja með í þessu móti og veitt eru verðlaun fyrir flesta punkta í karla- og kvennaflokki.  Þrjú efstu sætin fá verðlaun.

3.      Höggleikur – veitt eru verðlaun fyrir lægsta skor, án forgjafar.

Verðlaun verða mismunandi í hverju þrepi.  Sigurvegarar klúbbakeppninnar fá veglegan farandbikar og montrétt á því að vera besti Rótarýklúbbur í golfi – a.m.k. þetta ári 😊.  Það er einnig farandbikar fyrir höggleikinn.  Verðlaun fyrir einstaklingskeppni verða mörg og margvísleg.

Skráning fer fram á þessum hlekk.  Það er einnig gert ráð fyrir, að Rótarýfélagar skrái sig í Pólaris kerfinu, til að við getum haldið utan um keppendur frá hverjum klúbbi.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest þann 25. júní á Öndverðarnesi.

Hvetjum alla Rótarýklúbba til að taka sig saman og senda lið á mótið.  Engin takmörk eru á því, hve margir félagar frá hverjum klúbbi geta tekið þátt.  Í klúbbakeppni telja tvö bestu skor - óháð því hvað margir þátttakendur eru með frá hverjum klúbbi.  

Gestir eru velkomnir - og það taka allir þátt í punktakeppni einstaklinga - bæði Rótarýfélagar og gestir.

Dagsetning 25. júní frá klukkan 12:00

Vinsamlega hafið samband við Golfklúbb Öndverðaness fyrir hópaskráningu - eða skráningu gesta, sem ekki eru skráðir í goldklúbb.

Nánari upplýsingar um golfvöll:  Golfklúbbur Öndverðarness

Allir Rótarýfélagar og gestir eru velkomnir.

Skráning fer fram á meðfylgjandi hlekk:

GolfBox Tournament - Online Entry


Þín skráning

Aðal þátttakandi

Skráning


Skráning til: fimmtudagur, 12. júní 2025 kl. 11:30

Hámark fjölda þátttakenda: 100

Verð á mann verður kr. 9.900 og er innifalið í því golf og matur á eftir.  Vegleg verðlaun verða í boði.



Meðlimir: Vinsamlegast innskráið ykkur fyrir skráningu.
Innskrá áður en bókað er á viðburð   

Aðal þátttakandi

Þín skráning

Aðal þátttakandi